Vortónleikar Stórsveitar Tónlistarskóla FÍH (A-sveit) fara fram í Hinu Húsinu miðvikudagskvöldið 13. mai kl 21:00. Á efnisskránni er tónlist eftir nokkra af meisturum Big Band tónbókmenntanna ss. Thad Jones, Sammy Nestico, Bob Brookmeyer ofl.

Stórsveit Tónlistarskóla FÍH er hefðbundið 17 manna “big band” og er skipuð rjómanum af nemendum skólans hverju sinni. Tónlistarskóli FÍH er leiðandi í kennslu Rytmískrar (jazz/rokk) tónlistar á Íslandi. Hljómsveitin hefur gegnum árin komið fram víða um land auk þess sem hún hefur leikið erlendis.

Stjórnandi er Samúel Jón Samúelsson.

Semsagt:

Hitt húsið - Pósthússtræti 3-5.
Miðvikudaginn 13. maí.
Kl. 21:00.
Frítt inn.