Hinn þekkti gítarleikari Guðmundur Pétursson heldur útgáfutónleika í Bæjarbíói miðvikudaginn 4. febrúar næstkomandi.

Plata hans Ologies hefur fengið góðar viðtökur og lofsamlega dóma en nú gefst loks tækifæri til að heyra hana leikna á tónleikum.

Í hljómsveit Guðmundar eru Mattías M.D. Hemstock trommur, Davíð Þór Jónsson hljómborð og gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassi, Róbert Reynisson gítar og Helgi Svavar Helgason slagverk.

Áhugafólk um tónlist ætti ekki að missa af þessum einstaka viðburði. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og miðar fást hjá midi.is, Skífunni Kringlunni og Laugavegi.


(tekið af midi.is)