Bo Diddley er látinn. Hann lést þann annan júní úr hjartabilum á heimili sínu í Flórída. Diddleyh hefur lengi átt við veikindi að stríða og fékk hjartaáfall í fyrra minnir mig.

Þetta er auðvita alltaf jafn sorglegt en samt sem áður raunveruleiki sem við jazz og blús hlustendur verðum að taka á, goðin eru flest látin og þau sem enn lifa eru háöldruð.

Bo Diddley var einn af stóru köllunum í blúsmúsik og mikill áhrifamaður á fyrstu rokksveitirnar.

Megi goðsögn hans lifa áfram um aldir.

kveðja
Viddi