Fyrst að það er umræða í gangi um Jaco, Wayne Shorter og Weather Report þá langaði mig að láta ykkur vita af nýju bókinni sem var að koma út sem heitir: Jaco - The Extraordinary and Tragic Life of Jaco Pastorius. Þetta er svokölluð “anniversary edition” og kemur með geisladiski. Bókin er kaflaskipt eftir ártölum og er rúmmlega 300 blaðsíður, skrifuð af Bill Milkowski. Á disknum má finna gamlar upptökur, ummæli ættingja og ástvina um Jaco og útskýrir Zawinul einnig hvernig hann kynntist jaco og fylgir með demoið sem jaco spilaði fyrir hann.

Þar sem ég er bara nýbúinn að kaupa bókina og hef ekki lesið mikið get ég ekki tjáð mig mikið um hana, heldur langaði mig bara að koma því á framfæri að ný ævisaga um Jaco væri kominn út og ætti að finnast í helstu bókabúðum á aðeins 2500 krónur.