Jæja, hér vantar eitthvað, hvað sem er í raun.

Það vantar greinar, kannanir, korka, myndirnar eru kannski í lagi enda berast alltaf reglulega inn myndir en það má samt bæta það eins og annað.

Nýjasta greinin sem kom hingað inn sýnir vel að þetta áhugamál stendur fyllilega undir sér. Enda var sú grein kominn með 26 álit (sem er nokkuð hátt miðað við aðrar greinar áhugamálsins) á innan við 5 dögum. Enda var sú grein mjög flott og skemmtileg.

Umræða er fyrirbæri sem veltur sífellt upp á sig, um leið og hún fer af stað að þá mun hún að öllum líkindum aukast stöðugt. Það eina sem stendur í vegi fyrir að umræðan fari af stað eru notendur (stjórnendur meðtaldir).

Koma svo!

kveðja
WoodenEagle