Í tilefni af núverandi könnun ætla ég að reyna að vekja upp umræðu um Stevie Ray Vaughan.

Þegar þessi korkur er ritaður hefur mikill meirihluti notenda kosið möguleikann “Snillingur” og nú vil ég fá rökstuðning og almennar umræður um hæfileika þessa manns.

Ég kaus möguleikan “Meðal góður”, hann er alveg fínn kallinn, en mér finnst vera til svo margir aðrir mun skemmtilegri. Mér finnst bara hvítir menn ekki vera eins góðir í þessu og blökkumennirnir, nema þegar þeir búa til einhversskonar blúsrokk dót eins og Cream.

Í mínum huga eru til dæmis Muddy Waters og Buddy Guy mörgum stigum ofar en Clapton og SRV.