Jæja, þetta er smá “nýjung” sem okkur stjórnendunum datt í hug.

Þetta skýrir sig kannski svoldið sjálft en mig langar samt að útskýra þetta fyrir þeim sem hafa áhuga.

Við ætlum að gera smá hlé á Sólói Vikunnar og koma í staðin með þessa nýjung, Þetta gengur þannig fyrir sig að þið sendið okkur bara skilaboð með nafni blúsarans eða jazzarans og smá upplýsingum, bara eitthvað stutt, svona svipað og þessar RIP greinar sem finna má til dæmis á Gullaldaráhugamálinu. Einnig má alveg fylgja linkur á hæfilega litla mynd með en það er ekki nauðsyn. Ef að engar tilnefningar hafa komið inn þegar skipta á um listamann að þá sjálfsögðu verðum við stjórnendur bara að setja eitthvað inn.

Ég, WoodenEagle, mun semsagt sjá um Blúsara Vikunnar og hann oRiley mun sjá um Jazzara vikunnar.

Síðan vil ég benda á að ég hef aldrei verið stjórnandi áður og er enn að læra á þetta, ef eitthvað lítur skringilega út eða ef eitthvað er að þá endilega láta mig vita og ég skal reyna að kippa því í liðinn.