Ég veit ekki með ykkur en þetta er sennilega sú tónlist sem nær hvað best til mín. Þegar ég hlusta á þannig lög þá róast ég bara allur niður og slappa af sama hvernig skapi ég er í. Ef mér líður ekkert vel eða er reiður þá er bara nóg fyrir mig að hlusta á þannig lag og þá bara gleymi ég öllum vandamálum.

Þetta eru t.d. lög eins og That Old Feeling með Chet Baker, It Never Entered My Mind með Coleman Hawkins og Ben Webster, Cheek To Cheek með Ellu Fitzgerald og Louis Armstrong, Stína með Flís tríóinu, Flamenco Sketches með Miles Davis ofl…

Endilega segið mér hvort einhver tónlist hefur eins eða svipuð áhrif á ykkur.