Hvað er eiginlega málið með stjórnendurna hér, það eru fokkin 4 stjórnendur samt er þetta eitt lélegasta áhugamálið á Huga! Þeir kíkja ekki einu sinni inná Huga, siguay hefur ekki skráð sig inná Huga síðan 13. febrúar (þetta hlýtur að vera einn lélegasti stjórnandi Huga allra tíma, ég meina hvers konar hálfviti verður stjórnandi og skráir sig ekki inn í mánuð!), hvurslags skráði sig síðast inn þann 5. mars og garsil þann 28. febrúar! Barrett er sennilega eina ástæðan fyrir að þetta áhugamál er ekki bara orðið að engu, enda er hann næstum eini stjórnandinn sem er að gera eitthvað og skráir sig þó inn reglulega. Mér finnst að við ættum að taka klassík okkur til fyrirmyndar, þar var stjórnandi sem var bara alls ekki að gera sig en svo kom fantasia inn og núna koma nýjar myndir (svo dæmi sé tekið) inn á næstum hverjum degi í staðinn fyrir mánaðarlega. Það þarf eitthvað að gera áður en það er of seint og nýr stjórnandi þarf nauðsynlega að koma inn í staðinn fyrir þessa tossa áður en áhugamálinu er endanlega lokað.