Halló ég hef aldrei hlustað neitt að viti á blús en langar að byrja að hlusta. Ég þekki engan sem hlustar á blús þannig að ég var að hugsa um hvort að þið gætuð hjálpað mér að finna einhvern meistara/hljómsveit. Ég hef alltaf verið veikur fyrir blús gítarum og rafmagns munnhörpunni(vona að þið vitið hvað ég er að tala um….) Þannig að það væri frábært ef þið gætuð bent mér á einhverja meistara blúsins.
Kolur