Það er kominn tími til að skipta um borða á áhugamálinu, fá okkar eigin.

Þetta er voða einfalt, myndin þarf að vera 629x107 að stærð, myndefnið verður að sjálfsögðu að tengjast áhugamálinu.

Opið verður fyrir umsóknir til 1. apríl og þá hefst kosning sem stendur til 7. apríl.

Ég og aðrir stjórnendur áskiljum okkur rétt til að hafna illa unnum borðum eða einhverjum fíflaskap. Við skuldbindum okkur þó til þess að virða úrslit kosningar.

Borðanna sendið þið inn sem mynd en munið að merkja þá sérstaklega.

Endilega senda sem flestir inn, ég býst ekki við mikilli þáttöku þannig að ég fagna öllum tillögum. Munið einnig að hver notandi má senda inn eins og marga og honum sýnist og munið einnig að þetta er ekkert bara fyrir þá sem hlusta á jazz eða blús, bara alla sem hafa áhuga á svona myndvinnslu og eru með góðar hugmyndir.

kveðja
Stjórnendu