Já, vegna þess að það er nú ekki offramboð á greinum hérna ákvað ég að skella einni aulalegri könnun á kappana!;)
Ég ætla að segja ykkur hvernig saga mín á hjóli hefur verið.

Ég byrjaði svona 4 ára, átti þá hjól með hjálpardekkjum en notaði það sáralítið.
Ég var að koma heim ásamt fjölskyldu minni úr einhverju ferðalagi og allir úrvinda…. nema ég.
Nágranna stelpa sem var tveim árum eldri en ég var úti að hjóla án hjálparadekkja. Ég trylltist allur, hljóp inní skúr og sótti hjólið. En auðvitað gekk ekki að hafa hjálparadekk undir þegar STELPAn var án þeirra svo að ég hamaðist í pabba að taka þau undan, en hann var upptekin við að taka dót úr bílnum og ganga frá eftir ferðina. En eftir mikið nöldur tókst mér áætlunarverk mitt. En það entist ekki lengi.
Eftir að ég var búin að detta nokkrum sinnum á hliðina á hjólinu trylltist ég aftur og fór að væla í pabba að hjálpa mér, en þá var pabbi alveg að tryllast líka en þá kallaði nágranni okkar á mig og bað mig um að koma með hjólið. Ég gerði það og þegar ég kom, setti hann mig uppá hjólið tók í hnakkinn og stýrið og spyrnti mér af stað…. og hef ég hjólað síðan!
Eftir það átti ég aldrei í vandræðum með að hjóla, en næsta hjól mitt var BLEIKT pínulítið hjól sem var ofur hresst ( allavega þegar ég lít aftur og pæli í því).
Þegar það var orðið old fékk ég gamalt BMX hjól, ekki með pinnum þó, með bjöllum og hvítum dekkjum. Þá var ég sko með svalari krökkunum á Húsavík sko, þegar ég bjó þar.
Þegar ég óks upp úr því tók við eitthvað það svalasta hjól sem ég hef á ævi minni átt, það var í svona gráum hermannalitum, með púða á stönginni( how cool is that skoh?), svo var það líka með svona spjaldi þar sem stóra tannhjólið var og þegar ég var á ferð var það ofur töff af því að á spjaldinu var svona litir og eitthvað og það var töff eins og áður hefur komið framm.
Nú, svo óx ég upp úr því og fékk þá IceFox hjól, en það var svalasta logo sem hægt var að fá í mínum kolli sko, og entist það mér ár og aldir.
Eftir það tók við rautt Mongoose hjól sem ég fékk á útrýmingarsölu hjá Fálkanum! 42þús kjellz!;)
Nú svo síðast en lang ósýst, Mongoose LTD hjólið sem ég hreinlega meika ekki að lýsa vegna of góðra minninga um stolið og týnt hjól :'(:')

Enjoy, Fjarhundur;)