Sunnudaginn 19. júní verður haldið brunmót í Bláfjöllum. Er þetta fyrsta mótið af þremur í bikarmótaröð GÁP. Keppnin hefst klukkan 13:00, skráning keppenda og skoðun öryggisbúnaðar lýkur klukkan 12:00. Keppt er í einum flokki 18 ára og eldri. Foreldrar eða forráðamenn verða að sækja um leyfi skriflega til keppnisstjóra ef þátttakandi er yngri en 18 ára.

Skilyrði fyrir þátttöku í mótinu er að keppandi hafi farið 2 ferðir í brautinni. Brautin verður opin á miðvikudag 15. júní kl. 20:00 - 22:00 og á keppnisdag frá klukkan 10:00 - 12:00.
*
Öryggisbúnaður.* Keppendur skulu allir klæðast eftirfarandi öryggisbúnaði:**

1. Lokuðum hjálmi
2. Bak, hné, olnboga og axlahlífum með hörðu yfirborði (brynju).
3. Legghlífum
4. Hnésíðum buxum
5. Síðerma treyju
6. Heilum hönskum (kevlar)



Mælst er til þess að keppendur klæðist mjaðmahlífum, hlífðargleraugum, ökklahlífum, úlnliðshlífum og punghlífum.

Reiðhjólið, og þá sérstaklega öryggisbúnaður reiðhjólsins, skal vera í fullkomnu ásigkomulagi. Mælst er til þess að keppendur séu á fulldempuðum hjólum með diskabremsum (8 tommu).