Við fórum 3 saman í Húsafell og markmiðið var að hoppa fram af fossum.. Þegar við komum að fyrsta fossinum sem mældist 6m ákváðum við að labba lengra og þá komum við að foss sem mældist 12m. Vinir mínir ákváðu að hoppa saman fram af þessum fossi, en við vorum ekki búnir að skoða botnin neitt, jæja þeir hoppu á sama tíma og voru þeir fljótir uppúr vatninu enda var vatnið bara 2m djúft.. röðin var kominn að mér en ég beilaði þegar ég sá að annar vinur minn hafi farið með hnéð í botninn og það leit ekki mjög vel út. Þannig að við röltum niður að 6m fossinum og hoppuðum þar 6 stökk á mann,, nett kikk!
Helgina á eftir fórum við aftur þá 8 talsins og þá byrjuðum við á því að hoppa fram af 6m fossinum en það var ekki nóg þannig að ég og vinir frá helgina á undan ákváðum að færa okkur á hærri stall sem mældist 11m.. Við drógum strá um hver færi fyrstur og ég var síðastur að fara en þegar sá fyrsti fór lenti hann mjög vel en hinn fór með magann í botninn og röðin var kominn að mér ég söng paradise city með gun´s & roses á leiðinni niður (það róaði mig mikið9 ég lenti mjög vel.. Eftir að adrenalínið var komið vel á stað ákva´ðum við að fara uppá að fossinum sem mældist 12m en þegar þangað var komið fórum við tveir upp ég og sá sem slasaði sig helgina á undan,, við vorum þarna tveir og ég treysti mér ekki alveg í stökkið og ákvað að láta mig renna niður á lægri stall en ég missti takið og datt niður alla þessa 12m en Guð var með mér því að ég lenti mjög vel.. Adrenalínið var komið á milljón og hljóp upp aftur til vinar míns.. Hann stökk á undan og fór illa með öklann í botninn hann uppskar ljótasta sár sem ég hef séð blóð og beinmergur!! En svo ákvað ég að hoppa niður þessa 12m ég var geðveikt lengi á leiðinni niður og svo þegar ég lenti rak ég olnbogann í risastórann stein sem var alveg hliðina á mér (ég hefði steinDREPIST hefði ég lent á honum en Guð var enn með mér ég lenti annars mjög vel miða við hvað vinur minn gerði!! En ég vil mæla með þessu allir hafa gott af því að hoppa fram af fossum
takk í bili!!!!