Nú fer að hefjast riðlakeppni í Calsberg Foosball bar-móti 11-unnar. Þetta er fyrsta mót sinnar tegundar á Íslandi þar sem að bar 11 er eini barinn sem að er með Foosballborð. Foosballborðið hefur vakið svo mikla lukku hjá gestum staðarins að það var ekki eftir neinu að bíða en að skella mótinu í gang.
Skráning er þegar hafin á 11-unni. Þar kemur fólk inn og ræðir við hvern þann sem er á bak við barborðið og skráir sig hjá honum. Tveir eru í hverju liði og eru veglegir vinningar fyrir sigurliðið, t.d bikar, fatnaður úr Nonnabúð (sem að er staðsett í kjallara staðarins) og kassar af bjór. Riðlakeppnin verður í gangi á Sunnudagskvöldum og verður fyrsta kvöldið Sunnudaginn 29.Júni. Svo verður spilað á hverju sunnudagskvöldi þangað til 20. júlí, en þá verður úrslitarkvöldið og verður nafntogaður einstaklingur fenginn til að lýsa úrslitakvöldinu á 11-unni.
Öllum er velkomið að taka þátt og er bara um að gera að fara niður á 11-una og skrá sig.