Guðjón Þórðarsson, knattspyrnustjóri Stoke, hrósaði leikmönnum sínum og stuðningsmönnum liðsins mikið eftir sigurinn á Brentford í dag í úrslitaleik um laust sæti í ensku fyrstu deildinni. “Þetta er búið að taka tvö og hálft ár og við höfum verið nálægt því áður en loksins tókst þetta,” sagði Guðjón á heimasíðu Stoke.