Ég vil benda á frábæra þjónustu hjá íþróttavöruversluninni Jóa Útherja í Ármúla. Ég keypti hjá þeim Mitre bolta síðasta sumar, sem var orðinn dálítið beyglaður (ekkert stórvægilegt - en samt..) og sendi þeim e-mail þess efnis. Ég fékk svar frá þeim skömmu síðar þar sem mér var sagt að yrði tekið vel á móti mér. Og sú varð raunin. Starfsmaður verslunarinnar var ekki viss hvort þetta væri beinlínis galli eða bara eðlilegt en þó lét hann mig fá spánnýjan knött, í skiptum við þann gamla.

Ég vil því mæla eindregið með þessari búð þar sem þjónustan er sú albesta sem ég hef nokkru sinni fengið.