Áhangendur Rauðu stjörnunnar í Belgrad hafa ekki verið par ánægðir með gengi liðsins þetta tímabilið, og svo mjög var það farið að ganga nærri þeim að í dag réðist hópur þeirra inn á æfingu hjá liðinu og barði nokkra af leikmönnum þess. Rauða stjarnan er nú níu stigum á eftir höfuðandstæðingnum Partizan, og varð það til þess að reiðir áhangendurnir brugðu á það ráð að kenna leikmönnum lexíu, réðust inn á leikvanginn og eltu leikmennina til búningsklefa þar sem þeir börðu á þeim með stöngum. Tveir leikmannanna hlutu talsverð meiðsl af meðferðinni.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????