Ég les býsna mikið hér á huga um allan andskotann, en eitt vantar sem mig langar til að benda á, og það er sundið. Skemmtilegt að þurfa að vera að benda á þetta þegar ljósmyndinn hér á “bannernum” að ofan er úr sundi. Þetta fer sérstaklega fyrir brjóstið á mér að þetta skuli vanta en alveg fullt að segja um hesta og Box sem er ekki búið að vera löglegt í hálfann mánuð. Kem ég því hér með áskorun um að hafa sund-áhugamál undir íþrótta bálknum, sjálfur skal ég senda inn 4 greinar til að koma þessu af stað.

Kær kveðja, beegee