Fimmtudaginn 27. desember nk. kl.19.10 hefst hóf á Grand Hótel þar sem lýst verður kjöri Íþróttamanns ársins 2001 á vegum Samtaka íþróttafréttamanna. Einnig verður tilkynnt kjör íþróttamanna/íþróttakvenna sérsambanda ÍSÍ fyrir árið 2001.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun heiðra samkomuna með nærveru sinni ásamt Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra og öðrum góðum gestum. Þarna verður samankomið helsta afreksfólk þjóðarinnar í íþróttum ásamt íþróttafréttamönnum, íþróttaforystunni, landsliðsþjálfurum og aðstandendum.
<br><br><a href="http://kasmir.hugi.is/ari218">ari218……stóri