Ég verð bara að nefna það að þessi leikur var með þeim verstu sem ég hef horft á. Alls ekki út af því að þetta væri neitt leiðinlegur leikur. Nei, nei. Heldur var það lýsandinn, Þormundur Bergsson, sem fór alveg á kostum í því að eyðileggja annars mjög góðan leik með hlutdrægni sinni og fullyrðingum út í loftið.
Það endaði með því að ég slökkti á leiknum og fór að sofa, þetta var það pirrandi.
Til dæmis þá gat hann ekki hætt að hamra á því að leikurinn væri búinn og ekki nema mínúta liðin af fjórða leikhluta, og þá var ekki nema sjö-átta stiga munur minnir mig.
Ég veit ekki með ykkur en ég er búinn að fá mig fullsaddan á þessum lýsanda og vona að sýn missi réttinn á NFL svo hægt verði að gera þetta almennilega.
Íslenska NFL spjallsíðan