Eins og sumir hafa kannski tekið eftir þá er ég mikill áhugamaður um rúbbí, enda er þetta skemmtilegasta íþrótt í heimi, hún hefur bara ekki verið kynnt hér á landi.

Mig langar að stofna félag, þar sem þeir fáu sem vilja spila þessa íþrótt geta æft hana og með því móti reyna koma henni á legg hér á landi.

Þeir sem hafa áhuga, t.d. þeir sem svöruðu ‘já’ í könnuninni sem er nú í gangi, sendið mér endilega skilaboð ef þið viljið prófa.