ég veit ekki hvort þetta eigi heima undir íþróttum eða annarsstaðar, allavega finnst mér þetta helst eiga heima hér.

En ég hef verið pókeráhugamaður í svoldinn tíma og spilað endrum og eins á netinu, eins og eflaust margir aðrir, og rakst á þessa síðu http://www.pokerspilari.net.

Mér finnst frábær hugmynd hjá þeim að halda lokuð mót fyrir íslendinga (ég skil það þannig að þeir ætli að gera það). Alveg kominn tími á svona íslenskt pókersamfélag, þessar stóru síður virðast vera feimnar við að taka pókerinn upp sökum þessa gráa svæðis sem pókerinn er, þar sem hann er fjárhættuspil (þó hann sé alltaf skemmtilegastur í góðra vina hópi þar sem spilað er uppá bjór í versta falli)