Meistaramót Íslands í Frjálsum íþróttum verður haldið um helgina á Laugardalsvellinum.
Þar eru sko flottir krakkar með frábæran sjálfsaga.
Frjálsar eru nefnilega íþróttir einstaklingsins og hafa því miður ekki fengið jafngóða og mikla umfjöllun og hópíþróttin fótboltinn. Þarna verður keppt í hlaupum, stökkum og köstum.

Ég skora á ykkur.
Mætið í Laugardalinn um helgina og fylgist með upprennandi stjörnum á Meistaramóti 12-14 ára.