Sælir (eða sælar)

Ég er ný fluttur aftur á klakann eftir að hafa búið erlendis í nokkur ár, og var að velta því fyrir mér hvort einhverjir hér á landi væru að spila rugby.
Ég spilaði þetta aðeins úti og horfði mikið á þetta í sjónvarpi og ég er alveg sanfærður um það að þetta sé íþrótt sem íslendingar myndu fíla. Þessi íþrótt byggist á miklum grófleika og líkamlegum styrk, sem er einmitt það sem íslenskur fótbolti virðist byggja mikið á.

kv.
Kiddi