Landsbankadeildin hefst um helgina með heilli umferð. Opnunarleikurinn verður í Frostaskjólinu kl. 17 á laugardag þegar KR-ingar fá FH-inga í heimsókn. Hér á Vísi er hafinn draumaliðsleikur Landsbankadeildarinnar og hafa keppendur aðeins tvo daga til að stilla sínu draumaliði upp. Smellið hér til að taka þátt. Draumaliðið virkar þannig að hver keppandi fær 3,5 milljónir til að kaupa misdýra leikmenn Landsbankadeildarinnar. Allir stilla upp eftir leikkerfinu 4-4-2 sem eru 4 varnarmenn, 4 miðjumenn og 2 sóknarmenn + markmaður. Eingöngu má velja 3 leikmenn úr sama liði. Stigahæsta liðið eftir 6 umferðir, 12 umferðir fá veglegan glaðning og hlutskarpasta liðið í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik Arsenal-ManUtd í vetur.
nei, ég er ekki stelpa