Að mínu mati er nautaat heimskulegasta íþrótt í heimi! Ég meina, íþrótt sem gengur útá það að drepa saklaust naut er náttla bara rugl !! Ég var að skrolla á milli stöðva um daginn og datt inná spænska stöð sem var að sýna nautaat, mér finnst þessi íþrótt mjög heimskuleg en ákvað samt að horfa í von um það að nautið ynni. En því miður gerðist það ekki. Þetta byrjaði þannig að það kom inn gaur á hesti með eikkvers konar spjót og stakk nautið nokkrum sinnum. Svo komu nokkrir gaurar með bleik teppi inní hringinn, þeir voru líka með spjót. Þeir skiptust á að stinga spjótunum í aumingja nautið og skilja það svo eftir í nautinu. Þegar þeir voru farnir kom loksins nautabaninn sjálfur sem álitinn var algjör hetja með rautt teppi og gerði sínar hreyfingar, svo eftir nokkrar mín var nautið orðið örmagna sökum blóðsskorts og þreytu. Þá tók nautabaninn spjót og stakk því á kaf inn í bakið á nautinu, nautið féll niður og ældi blóði, og áhorfendurnir KLÖPPUÐU!!! Þessi íþrótt á ekki að heita íþrótt og nautabanar og hans fylgilið ættu að starfa í sláturhúsi!

Kv.
Gv.