Fimm leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Real Madrid heimsótti Recreativo Huelva og þar varð niðurstaðan markalaust jafntefli. Deportivo La Coruna sigraði Malaga 2-0 á sama tíma og með sigrinum náði félagið toppsætinu af Real Madrid á Spáni. Real Sociedad getur einnig komist upp fyrir Real Madrid en liðið leikur á morgun við Real Mallorca á útivelli.

Real Madrid lék með hálfgert varalið í kvöld en meðal annars voru Zinedine Zidane og Luis Figo hvíldir. Það voru Gama Donato og Lionel Scaloni sem skoruðu mörk Deportivo La Coruna í kvöld.

Úrslit kvöldsins á Spáni
Athletic Bilbao - Valladolid 0-0
Atletico Madrid - Alaves 0-1
Espanyol - Osasuna 0-0
Malaga - Deportivo La Coruna 0-2
Recreativo Huelva - Real Madrid 0-0

Staða efstu liða á Spáni
1 Deportivo La Coruna 66 stig
2 Real Madrid 65 stig
3 Real Sociedad 63 stig
4 Valencia 53 stig
5 Celta Vigo 53 stig

Heimildir: sportid.is

Kveðja kristinn18