Þetta er engin grein sem þið eruð að fara að lesa. Eina ástæðan fyrir að ég sendi þetta inn sem grein er til að einhverjir sjái þetta og geti gefið mér einhver svör.
Þannig er mál með vexti að ég og margir vinir mínir höfum gríðarlegan áhuga á bandý og hittumst einu sinni í viku og spilum og spilum. Það sem ég var að spá með þessari “grein” er hvort einhver þarna úti getur sagt mér hvort hægt sé að æfa bandý hér á landi og þá hvar.
Svo var líka pæling í því að ef þetta væri hvergi æft hvort einhverjir þarna hefðu áhuga á að hittast einhverntimann og keppa við mig og félaga mína.
Líka væri flott ef einhver gæti bent mér á heimasíðu svo ég geti kynnt mér betur reglurnar í þessu því flestar reglurnar sem vip notum eru ábyggilega bara bull.
Allaveganna….. vonandi er einhver þarna sem skilur ástríðu mína á þessari göfugu íþrótt.