Markmaðurinn Oliver Kahn hefur komið mörgum á óvart með því að segja að hann sé
orðinn hundleiður á fótbolta þar sem hann spili alltof marga leiki. Hann sagði einnig að
Evrópumeistararnir væru orðnir hálf þreyttir. Þessi 32 ára fyrirliði þýska landsliðisins
segir að það sé of mikið að vera í landsliðinu, spila í Bundesligunni og meistaradeild
Evrópu.

“Dagskráin hefur verið svo erfið á tímabilinu, það er ömurlegt, stundum hata ég
fótbolta,” sagði Kahn. “Það eina sem ég geri er að spila fótbolta, æfa, fara heim og
sofa, ég geri ekkert annað. Frá því í upphafi tímabilsins hef ég spilað tvo leiki á viku,
það sama á við um okkur alla, við erum þreyttir.”

Kahn kemur til Englands í dag en lið Bayern München leikur gegn Man United á Old
Trafford í kvöld. Leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu en Kahn segist vera orðinn
dauðleiður á að mæta ensku meisturunum. "Ég hef ekki einu sinni getað hugsað um
leikinn við Manchester United. Mér finnst þetta leitt en svona er þetta
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????