Ágætis þátttaka var í þessari fyrsti íþrótta triviu en samtals tóku 15 keppendur þátt. Ég vona samt að fleiri munu taka þátt í næstu sem ég mun birta í vikunni. Vonandi var þessi ekki of erfið eða of létt, endilega tjáið ykkur um það :)

Vikkisig - 11
Mogo – 11
Belja – 10,5
HerraAdam – 10
Sigurjons – 11
Snilli23 - 10
Finisboy - 10
Borkurinn – 9
Gvendz – 9
Morphende – 9
Giz – 10
Zilentzombie – 8
Bangso – 7
Reykur – 6
Binz_Gautz – 5


1. Spurt er um þekktan íþróttamann frá Bandaríkjunum. Hann þjáðist af krabbameini í eistum, heila og og lungum en náði að vinna á sjúkdómnum, nóg er sagt. (1 stig)


Þetta er að sjálfsögðu hjólreiðakappinn Lance Armstrong.


2.Hvaða íþróttamaður er þetta og fyrir hvað fékk hann ólympíuverðlaun á seinustu leikum. (2 stig).

http://i46.photobucket.com/albums/f133/Toggeh/itrottatrivia333.jpg?t=1164934188


Þessi reyndist flestum erfið en Mogo var sá eini sem var með bæði stigin. Þetta er að sjálfsögðu Shaun White og hann keppti í hálfpípu. Margir hafa örugglega séð hann hjá Jay Leno eða t.d. verið að keppa á hjólabretti á Sýn.


3. Spurt er um ártal. Tuttugu og þriggja ára gamall svertingji ögrar Hitler með því að vinna ólympíuverðlaun í 100m, 200m, langstökki og í 4x100m boðhlaupi á Ólympíuleikunum í Berlín. Einnig voru vetrarólympíuleikarnir haldnir í Þýskalandi sama ár. Þó er ekki talið allt það merkilegasta sem gerðist í þýsku íþróttalífi þetta árið en þýski boxarinn Max Schmeling vann Joe Louis, sem var fyrsta tap Louis á ferlinum. Þess má líka geta að körfuboltasnillingurinn “Wilt the Stilt” Chamberlain fæddist þetta ár. (2 stig fyrir rétt, 1 stig ef þú giskar 5 árum til eða frá)


Þetta er að sjálfsögðu merkisárið 1936 og ég held að flestir hafi verið með þetta, eða allavega 1 stig.


4.Þetta er Rungrado May Day Stadium, stærsti leikvangur í heimi. Hann er í Asíu, en í hvaða landi? http://i46.photobucket.com/albums/f133/Toggeh/pyongyang_may_day1.jpg?t=1164934743 ( 1 stig )


Þessari klúðraði ég algjörlega, í linkum kemur fram borgin PyongYang, og þeir sem eru vel að sér í landafræði ættu að fatta að þetta er auðvitað Norður-Kórea. Passa mig næst á þessu.


5. Orðarugl. Nú verður ruglað nafni íslenskrar frjálsíþróttakonu og þú verður að finna út hver það er: Avla Dfótritaslo.


Mjög auðveld þessi, ég hafði ekkert hugmyndaflug og allir voru með þetta rétt.


6.Spurt er um sjálfsvarnaríþrótt. Hún kemur frá Japan og er meira en 2500 ára gömul. Ekki er vitað hvernig þessi íþrótt var fundin upp en talið að hún eigi einhverjar rætur að rekja til Kína, þó hún sé talin japönsk. Samúræjar notuðu oft þessa íþrótt í bardögum án vopna frá 8. öld og alveg fram á 16. öld. Um 1850 var þessi íþrótt bönnuð í Japan og var næstum dáin út. Þó var hún aftur leifð hundrað árum síðar og vinsældir jukust en júdó var orðið miklu vinsælla. (1 stig)


Nei þetta er ekki karate eins og svo margir giskuðu á. Þetta er auðvitað jujitsu en það kemur ekki á óvart að það voru ekki margir með þetta rétt, svoldið þung.


7.Spurt er um handboltaþjálfara. Hann hefur þjálfað íslenska landsliði og hefur náð bestum árangri alla þjálfara landsliðsins frá upphafi. Hann tók við liði í 2. deild árið 1995 en kom því strax í fremstu röð. Tíu árum síðar tekur hann aftur við sama liði með mjög góðum árangri. (1 stig)


Þetta er auðvitað bardagadvergurinn sjálfur, Guðmundur Guðmundsson.



8. Spurt er um íslenskan boltaíþróttamann og íþróttina sem hann stundar. Stundum er íþróttin spiluð tveir á móti tvemur og stundum einn á móti einum. Notaðir eru spaðar til þess að slá boltan yfir net. En íþróttamaðurinn sem verið að spyrja um hefur unnið yfir 100 íslandsmeistaratitla og hefur einokað þessa íþrótta hérna heima á Íslandi. (2 stig)

Guðmundur Stephensen og borðtennis, held að flestir eða ef ekki allir hafi verið með stig þarna.


9. Að þessu sinni er verið að spyrja um karlmann af frönskum uppruna. Hann er trúlofaður örvæntingarfullri húsmóður og kallar ekki allt ömmu sína. Já, hann er körfuboltamaður og leikur með bandaríska liðinu San Antonio Spurs. (1 stig)


Hérna var ég að leita eftir Tony Parker, ég var hrifinn af þessari vísbendingu en ég held að flestir hafi fengið stig hérna.

10. Í Formúlu 1 taka þátt kvikindi frá mörgum löndum. Nefndu einn ökumann frá Þýskalandi, einn frá Spáni og einn frá Brasilíu.
(2 stig fyrir allt rétt, 1 stig fyrir 2rétt).

Held að allir hafi verið með þessa rétta, enda var hún mjög auðveld.



Ef að þið eruð ekki á listanum en tókuð þátt, sendið mér þá skeyti og ég læt laga það.