Supurbowl var að klárast og New England Patriots eru meistarar annað sinn á 3 árum og Tom Brady var MVP annað sinn á þremur árum.

Leikurinn byrjaði rólega, lélegar sendingar hjá báðum liðum vörnin var að gera sitt hjá báðum liðunm, Adam Vinatieri klúðraði vallarmarki eftir nokkrar mínotur, og staðan var 0 - 0 eftir fyrsta leikhluta, í seinni leikhluta lét Adam Vinatieri blokka vallarmarks tilraun, þegar 3 mínotur voru eftir að leiknum þá byrjaði allt, Patriots skora snertimark eftir góða sendingu til D. Branch frá Tom Brady rétt fyrir utan endlínuna, Panthers skora snertimark eftir 39 jarda sendingu á S. Smith frá Jake Delhomme þá er staðan 7 - 7 Patriots byrja með boltann þegar rúm ein mínota er eftir og komast af 5 jarda línunni eftir nokkrar sendingar og þá taka þeir sama leikkerfið og áðan en nú grípur D. Givens boltann eftir gott kerfi. Patriots sparka frá sér og Panthers grípa og koma boltanum að 45 metra línunni svo skorar sparkari Panthers J. Kasay 50 jarda vallarmark þegar klukkan rennur út. Og staðan eftir tvo leikhluta er er 14 - 10 fyrir Patriots.

Í þriðja leikhluta byrja Patriots með boltann ekkert mikið skeður í þeim leikhluta en Patriots enda leikhlutann með boltann á 4 jarda línunni. Fyrsta sendingin hjá Tom Brady í fjórða leikhluta mistekst en Panthers fá á sig víti þannig að Patriots byrja alveg við endalínuna, Brady réttir A. Smith boltann og hann hleypur í markið og skorar þannig að staðan er 21 - 10 fyrir Patriots í þegar tíu mínotur eru búnar af fjórða leikhluta. Nokkrum mínotum seinna skora Panthers eftir 33 jarda sendingu frá Delhomme til D. Foster, Panthers reyna við tvo stigin en klúðra því þannig að staðan er 21 -16. Svo þegar 7 mínotur eru eftir af leiknum þá kemur 85 jarda sending frá Delhomme til M. Muhammed en þessi sending er lengsta sem hefur verið gerð í Superbowl, og svo reyna Panthers aftur við tvo stig en klúðra því aftur þannig að staðan er 21 - 22 fyrir Panthers þegar rúmar 7 mínotur eru eftir að leiktímanum. Patriots hafa boltann í nokkrar mínotur og skora svo þegar 2:55 er eftir af leiknum eftir stutta sendingu frá Brady til M. Vrabel, Patriots reyna við tvo stig og ná þeim, staðan er 29 - 22 fyrir Patriots. Panthers með Jake Delhomme í broddi fylkingar ryðjast upp völlin og skora snertimark þegar 1:08 eru eftir, Delhomme senti boltann til hins gamla R. Proehl staðan í leiknum er 29 - 29. Patriots fara upp völlinn og komast nógu nálægt til að Adam Vinatieri geti tekið 41 jarda vallarmarks tilraun og hann skorar úr henni og tryggir þeim Superbowl titilinn alveg eins og fyrir tveimur árum en þá með 48 jarda vallarmarki.

Tom Brady er valinn maður leiksins eins og mátti búast við ef NE Patriots myndi vinna og Panthers þurfa að fara aftur til Carolina með súran haus.
Þetta var mjög spennandi og skemmtilegur leikur og maður var alveg á límingunm rétt undir lokin enda alveg frábær leikur.

Jæja þá er þetta komið ég vona að þetta hafi verið skemmtilegur lestur Kv. Kelima
I'm not normally a religious man, but if you're up there, save me, Superman! Homer J. Simpsons