Út í útlöndum hefur verið mikið um nýja tegund bardagaíþróttar sem heitir Ultimate vehicle chain fighting championship og er nafnið smá háð á hinar vinsælu UFC keppnir. Þetta lýsir sér hisvegar allt öðru vísi. Það eru margir klúbbar úti og er sá stæðsti í Kanada og heitir forsprakki hans “Zack willow” og er talinn einhver besti UVCFC bardagamaður í heiminum.

Jæja ég fékk hér góða hugdettu um að hefja þessa nýju tegund bardagaíþrótts hér á landi. Ég ætla að kalla það Ultimate vehicle chain fighting championship Iceland eða UVCFCI.

Ég ætla aðeins að lýsa því hvernig þessi keppni fer fram í smáatriðum.

Menn berjast með keðjum á allslags farartækjum eins og mótorhjólum (fáum kannski sniglanna til liðs við okkur), þyrlum, 10 hjóla trukkum (helst með leðursætum) eða fjórhjólum, skilda verður að vera klæddur í leðurbúning og vera með hanakamb (til að bæta ímyndina aðeins). Íþróttin lýsir sér þannig í smáatriðum að maður þarf að hitta viðkomandi andstæðing þangað til hann gefst upp eða dettur niður. Hinn víðfrægi kappi Ási sveitti ætlar að dæma fyrir okkur.

Skemmtiatriði eru líka stór hluti af þessu og eru mest öll böndin sem spila í hléum heavy metal bönd og einnig eru gamanatriði sem eru stjórnuð af skara skrípó kanadamannanna, Funny Scar.

Við gætum haldið þessar keppnir í viðey eða miðbænum og hefur landhelgisgæslan sýnt þessu mikinn áhuga t.d. og gætum við fengið þyrlur lánaðar frá þeim og gætu kannski nokkrir úr þeirra sauða húsum tekið þátt í þessu.

Áhugasamir sendi mér skilaboð.

Með von um góða mætingu,
Skugginn