TYSON SNÖGGUR MEÐ ETIENNE
Hnefaleikarinn Mike Tyson var aðeins 49
sekúndur að sigra Clifford Etienne í
Memphis í nótt.

Tyson reyndi að fá viðureigninni slegið
á frest, bar við að hann hefði flensu,
og því ekki getað æft sig í viku, en á
það var ekki fallist. Hann mætti því
til leiks, og rotaði andstæðing sinn
snemma í fyrstu lotu.

Sérfræðingar gera því þegar skóna að
Tyson mæti Lennox Lewis að nýju og
berjist um heimsmeistaratignina.
Sjálfur segist Tyson þó ekki tilbúinn í
þann slag. Hann tapaði illa fyrir Lewis
í júní í fyrra.