Íþróttamenn og konur ársins að mati Reuters! RONALDO OG SERENA WILLIAMS ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS HJÁ REUTERS

Bandaríska tenniskonan Serena Williams og brasilíski knattspyrnumaðurinn Ronaldo hafa verið valin íþróttamenn ársins af Reuters-fréttastofunni.

34 íþróttafréttamenn frá 27 löndum tóku þátt í kjörinu. Williams fékk 65 stig í af 102 mögulegum. Paula Radcliffe heimsmethafi í maraþoni varð önnur í kvennaflokki og sænski kylfingurinn Annika Sörenstam þriðja. Ronaldo hlaut 63 stig í karlaflokki. Michael Schumacher, heimsmeistarinn þýski í Formúlu 1 kappakstrinum varð annar með og bandaríski hjólreiðakappinn Lance Armstrong þriðji.

ruv.is/fretti