Gogoyoko í samstarfi við Grapewine kynna:

Kimono, Rökkurró og Me, The Slumbering Napoleon á Grand Rokk 29. Maí.

Herlegheitin hefjast klukkan 22:00 og standa fram eftir nóttu.

1000 krónur inn.

Kimono þarf vart að kynna fyrir rokkþyrstum íslendingum enda eitt skemmtilegasta og frambærilegasta band á Íslandi í dag. Með nýtt efni í fararbroddi munu þeir rokka úr ykkur framtennurnar.

Rökkurró eru að leika á Íslandi í fyrsta skipti eftir gífurlega vel heppnaða Evrópureisu og munu leika lög af nýrri plötu sem þau stefna á að senda frá sér í byrjun næsta árs í bland við gömul lög.

Me, The Slumbering Napoleon er með efnilegri böndum á landinu í dag og leika bjagað gítarrokk í anda Polvo og fleiri frábærra sveita.


Vonumst til að sjá sem flesta.