Þetta er í raun og veru opið bréf til manns að nafni Egillboy eða eitthvað slíkt, what ever.

Þú, minn kæri drengur ert haldinn ákveðnu sálfræðilegu einkenni sem ég kann ekki nafnið yfir.
Þetta einkenni lýsir sér þannig að þú heldur að það að geta snögglega fundið orð sem ríma geri mann að góðum rappara.
Brace yourself….. svoleiðis er það ekki.

Í raun og veru getur hver sem er búið til texta líkt og þína
Til dæmis:

Þú rappar ekki vel
og lepur daupan úr skel
og ég tel
að þú verðir barinn í hel

Ef þú hættir ekki
að semja þessa flekki
og setjist aftur á skólabekki

Því miður
en það er fastur liður
að ef einhver sökkar, þá er hann dreginn niður.

Var þetta gott? Nei.
Var þetta jafn gott og þínir textar? Já.

Og svo er þessi eldskemmtilega afsökun: “ég er bara 13 ára”
það er einmitt málið, þú ert bara 13 ára, þessvegna ættir þú að hætta þessu rugli og fara að æfa þig…

…svo þú getir rappað betur
og forðast eftir-setur
bjargi sér hver sem betur getur
farðu að horfa á Gettu Betur
við hinir býðum og sjáum hvað setur.

Sorrý, þegar maður byrjar að gera lélega rapptexta er erfitt að hætta.
Nýju undirskriftar reglurnar sökka