Góða nótt.

Ég var að velta því fyrir mér hvort að það séu fleiri en bara ég sem þola ekki þessa hljómsveit, Sprengjuhöllina.

Alveg síðan ég heyrði fyrst ‘tónlist’ þeirra varð mér ekki rótt og mér þótti ég knúinn til að sofa með ljósið kveikt á nóttunni á ný.

Þeir hafa alltaf nótið mikillar athygli og umfjöllunnar og mig fýsti að fræðast um hvort ég væri sá eini sem þyki þeir vera hæfileikasnauðir kjötsúputrallarar.

Meiningin men þessum korki er ekki endilega að úthúða þeim, heldur að komast að þvi hvort að fjölmiðlar á íslandi séu virkilega að fókusa á rétta fólkið í tónlistarheiminum á þessari blessuðu litlu eyju okkar.