Snorri heiti ég og er '91 módel. Ég er að leita að hljómsveit á svæðinu í kringum Selfoss. Ég er ekki með þyngstu rödd í heimi en ég tel mig geta sungið ágætlega. Ég er góður á falsettuni og get sungið flest allt milli himins og jarðar. En… ég kann ekki að growla ef þið eruð að leita að svoleiðis söngvara (væri samt alveg til í að læra það xD).

Einnig er ég gítarleikari. Ég spila mest rythmískan gítarleik og er fljótur að læra. Er búinn að spila í nokkuð mörg ár (held að það séu að verða 10) og hef mikla reynslu reynslu af hljómsveitarleik. Ég spila á Schecter C-1 Classic og á lítinn en kraftmikinn magnara.

Ef þið hafið áhuga, þá getið þið sent mér mail á snojo@simnet.is eða commentað hér fyrir neðan.

Og endilega ekki vera feimin við að spyrja :)

- Snorri