Ég var að kaupa mér þennann disk eftir að hafa heyrt mikið af honum á Rás 2 í síðustu viku þar sem þetta var Íslenska plata vikunnar, og ég verð bara að segja að ehljómsveit er að koma mér virkilega á óvart! Ef fólk fílar rólega tónlist með fallegum söng þá er þessi plata klárlega eitthvað sem er skyldueign, og jafnvel þótt þú sért ekki mikið fyrir rólega tónlist, eins og ég, þá er þetta samt frábær plata!

Flest lögin á þessari plötu eru með svo grípandi spili og fallegum söng að maður fer að velta því fyrir sér hvort þetta sé í raun og veru íslenskt.



Soundspell - An ode to the umbrella = ****