Hæhæ, er að spá hvort þig getið hjálpað mér með að muna hvaða lag þetta er með Sálinni Hans Jóns Míns.
Man að það var mikið í spilun árið 2000, um sumarið minnir mig.
Ég man pottþétt hvernig videoið var.
Þetta var í framtíðinni, og kom vélmenni(leit út einsog maður) inná sviðið og kynnti þá fyrir hálftómum litlum sal. Hann talaði með erfiðleikum, einsog hann væri gallaður.
Söngvarinn af ellilegur, og mig minnir ða þeir hafi allir verið í rauðum jökkum, minnir mig.

Ekki er minnsti möguleiki á að einhver kveiki á bjöllunni? :P Veit að þetta er ekki mikið, en þetta er það sem ég man ;)

Adios.