Ég var að lesa á netinu um að það væru falin skilaboð og svona í lögum eins og Stairway to Heaven og öðrum lögum og fór að hugsa hvort það væru einhver þannig í íslenskum lögum, þannig að ég kíkti á lagið Hvar er draumurinn með Sálinni og spilaði það afturábak.

Ég veit nú ekki hvort þetta séu falin skilaboð, en í miðju laginu (þar sem hann singur Hvar er draumurinn - Hvar ertu lífið sem ég..) spilað afturábak heyrist hann segja svolítið í líkingu við þessi orð:

Ég lifi, ég á son í mér, ég var þeim mest í huga,

svo aðeins lengra heyrist: ofan í huganum á háum hest (eitthvað þannig)

Kíkið á þetta sjálf. Þið verðið að Converta Mp3 laginu yfir í Wav og nota Sound Recorder til að nota Reverse.