já, þú!
ert þú trommuleikari eða gítarleikari? (eða tölvutrommari eða hljómborðsleikari) flott mál, Hljómsveitin TIL (The International Lovers) eða réttara sagt dúettinn hefur ákveðið að stækka við sig og vera með 3 eða jafnvel 4 meðlimi. Við erum að tala um gítarleikara/hljómborðsleikara og helst trommuleikara/tölvutrommuleikara. planið er að spila dark, ambient framsækið og tilraunakennt metal/hardcore með miklum áhrifum alls staðar frá. Og væri best að fá hljóðfæraleikara sem eru óhræddir að fara ótroðnar slóðir í tónlistinni, prófa eitthvað nýtt.

hljómsveitin er staðsett á Akureyri þannig að ef þú átt heima á svæðinu eða ert í skóla hér, og vilt endilega ganga til liðs við okkur þá endilega láta okkur vita hér eða einfaldlega í gegnum e-mail (dcbob@forerunners.org)

og ef þið viljið vita aldur okkar þá er ég sjálfur 17 ára og Hansi er… öööh… 19 minnir mig :P
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson