Fimmta Herdeildin spilar á Grandrokk miðvikudaginn 30. mars ásamt Dýrðinni. Skyldumæting er kl. 22.00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér og hér.
5ta herdeildin er nýkomin úr spilamennsku í Rússlandi þar sem þeir vöktu mikla lukku, og Dýrðin hefur fengið góða dóma á vefritum í Hollandi, Bretlandi ítalíu og öðrum krummaskuðum, þar sem meðal annars var sagt:

Dýrðin maakt heel aanstekelijke casiopop van het soort meer, nog meer en dan nog veel meer. Daar worden we heel gelukkig van.

Látið ekki þetta einstaka tækifæri fram hjá ykkur fara!