Tvíhöfði

Ég vil ei vera væminn



Ástin er svo mikil, að mér er orðið heitt

Þú elskar mig svo líka, að þú ert orðin sveitt

En ertu þá farin, ertu farin frá mér

Hvar ertu núna, ertu flutt eitthvað burt



En ég mun ekki grenja, eins og alger aumingi

Ég tel mig vera karlmann, en ekki kellingu


En ég vil ei vera væminn, aldrei

Og ég er hér, og ber mig bara vel, án þín



Og ef þú heldur að ég grenji yfir þér,

þá veistu ekki hversu sterkur ég er,

Ég er karlmaður, enginn aumingi

Ekkert kjaftæði og kerlingarvæl


Og reikningarnir sem þú sendir

heim, ég ætla ekki að borga af þeim

Ég læt þá falla á þig,

því þú særðir mig, og það er ljótt að særa fólk



Manstu þegar þú sást mig fyrst,

Hvað þú hafðir litla matarlyst

En ég gaf þér fisk, og þú braggaðist

og þú heillaðist af mér sem karlmanni



Og þó það komi fyrir að ég missi saur

þá er ég alls ekkert væminn gaur

Ég ertöffari, enginn aumingi

þó það komi fyrir að ég grenji



Ég vil ei vera, væminn, aldrei

Og ég er hér, og ber mig bara vel, án þín.



Ég get lyft heilli þvottavél, án þín

ég get drukkið eitt kláravín, og keyrt bíl

Ég er harður af mér, ég nagli er,

já ég ekki væminn er



En ég vil ei vera, væminn, aldrei

Og ég er hér, og ber mig bara vel, án þín.



Og ef þú heldur að ég grenji yfir þér,

þá veistu ekki hversu sterkur ég er,

Ég er karlmaður, enginn aumingi

Ekkert kjaftæði og kerlingarvæl