Núna á laugardaginnn sat ég í herberginu mínu og spilaði á gítarinn, en var nokkurnveginn búinn að fá nóg af því svo að ég fór á netið. Þá fattaði ég allt í einu að ég hafði ekki farið á Rokk.is í langan tíma, svo ég fór á hana og fann þá hljómsveitina Elín Helena.

Ástæðan fyrir því að ég sendi inn þessa littlu sögu var einfaldlega sú að ég vildi auglýsa þessa mögnuðu hljómsveit og finnst mér að ef þú ert að leita þér að hráu, hágæða pönki þá er þetta rétta bandið, Elín Helena er fokkin snilld.