Jæja…Nú hringdi vinur minn í mig um daginn og spurði mig hvort ég vissi hvort Baseline með hinni ágætu hljómsveit Quarashi hefði verið á einhverjum diski áður en lagið kom út á Jinx. Ég vildi meina að það væri á fyrsta diskinum - Quarashi - en eftir að hafa grennslast aðeins um það þá fékk ég að vita að svo var ekki.

Nú held ég að þetta lag hafi komið út á smáskífu ásamt Transparent Parents sem til minnar vitundar hafði ekki heldur komið út á diski áður en það var gefið út á Jinx.

Veit einhver eitthvað um þessi lög og hvar þau voru heyrð fyrst?

Takk fyri