Um daginn þegar ég kveikti á sjónvarpinu á Popp-Tíví þó ég geri það mjög sjaldan þessa stundina vegna þess að þar er nánast ekkert spilað nema Rapp og Hip Hop sem ég er ekki beint að fíla. En allavega kom lag með Á móti sól(man ekki hvað það heitir). Strax í byrjun gerði ég mér grein fyrir því að þetta var ekkert annað en stolið lag. Gítarstefið var nákvæmlega(og þá meina ég nákvæmlega)eins og London Calling með The Clash.

Ég vil bara vita hvort einhver annar hefur tekið eftir þessu.