Í Tilefni dagsins í dag (afar sérstakur dagur) legg ég til að við íslensku stúlkurnar skulum stofna almennilegt Band! Lengi höfum við þurft að glíma við hryllilegum strákaböndum á böllum(samt eru það nú margar góðar, eins og Svitabandið, Amos og Dáðadrengirnir.) Mig langar samt að stofna hljómsveit skippulögð og stýrt af stelpum! Það eru margar stelpur sem dreyma að vera í hljómsveit og vera eitthvað annað en bakraddasöngkonur. Stelpur hví ekki að grípa tækifærið og sýna þjóðinni hvað í ykkur býr! Ég er samt EKKI að tala um eitthvað líkt atomic kitten, Sugababes eða einhver af þessum svo called “stelpu hljómveitum” ég er að meina eitthvað sígilt, flott, eitthvað sem allir fýla! Meira rokk heldur en píkuskræki ;)Audda þurfum við líka einhverja massaða söngkonu! Erum þegar kominn með góðan trommuleikara!…og kannski að ég færi eikkað að glammra á gítarinn ;) En áhugasamar stelpur endilega að láta í ykkur heyra!
kv. Rakel