Þegar sveinki kemur af fjöllum
Með gjafir handa öllum
Gleðjast börnin hátt og kátt
Því jólin koma brátt

Þegar styttist í jólin
Og klukkan nálgast fimm
Myndast fótspor í snjóinn
Sveinki læðist inn

Inni allir skreyta tréð
Með stórri jólastjörnu
Litlu börnin leika sér
Og hringsnúast um ömmu

Eftir matinn södd og glöð
Byrja að opna pakka
Athöfnin reynist býsna hröð
Og jólunum börnin þakka

Þetta lag er samið af hljómsveitinni Tripple Nipple.
Undirskrift sem þú vilt hafa í lok hvers pósts á korkunum. Aðeins 1024 stafir leyfðir, allt framyfir þeirri takmörkun verður klippt af.